Hjónavígsla
Hjónavígsla í kirkju er helgiathöfn sem fer fram á grundvelli kristinnar trúar. Þar staðfesta hjónaefni vilja sinn til að ganga saman æviveginn og hljóta blessun yfir hjónaband sitt.

Fyrstu skref
Best er að hafa samband við sóknarprest með góðum fyrirvara þegar óskað er eftir hjónavígslu. Í fyrstu samskiptum er rætt um dagsetningu, stað og undirbúning athafnarinnar. Algengast er að hjónavígsla fari fram í kirkju en hún getur einnig farið fram annars staðar eftir samkomulagi.
Ef sóknarprestur annast hjónavígsluna í einni af kirkjunum okkar sér hann einnig um bókun kirkjunnar. Hjónaefni fá síðan sendar upplýsingar um næstu skref, ritningarlestra og rafrænt eyðublað þar sem helstu upplýsingar eru skráðar.
Könnunarvottorð, svaramenn og vottar
Hjónavígsla hefur jafnframt réttarleg áhrif. Áður en hún getur farið fram þurfa hjónaefni að fá könnunarvottorð frá sýslumanni. Vottorðið staðfestir að skilyrði hjónavígslu séu uppfyllt og þarf að berast presti fyrir athöfnina.
Við umsókn um könnunarvottorð eru tilgreindir tveir svaramenn sem staðfesta að enginn lagatálmi sé á fyrirhuguðum hjúskap. Við hjónavígsluna sjálfa þurfa einnig að vera viðstödd tvö vitni.
Mikilvægt er að kynna sér skilyrðin og hefja ferlið tímanlega.
Undirbúningur hjónavígslunnar
Fyrir hjónavígsluna hittir prestur hjónaefnin. Fyrir samtalið fá þau sendar upplýsingar um undirbúninginn, tillögur að ritningarlestrum og rafrænt eyðublað þar sem helstu upplýsingar eru skráðar.
Í samtalinu er farið yfir athöfnina frá inngöngu til útgöngu og rætt um sálma, tónlist, ritningarlestra, bænir, heit, hringaskipti, þátttöku fjölskyldu eða vina og aðrar óskir hjónaefnanna.
Þar er einnig rætt um ávarp prestsins. Sum hjónaefni vilja að það taki mið af sögu þeirra og samleið en önnur kjósa almennara ávarp. Hvort tveggja kemur til greina.
Athöfnin
Í hjónavígslunni er lesið úr Ritningunni, beðið og prestur flytur ávarp. Brúðhjónin svara spurningum og lýsa í áheyrn votta yfir vilja sínum til að vera hjón. Þau handsala síðan þann sáttmála og hljóta blessun.
Með svörum sínum og handsali bindast þau hvort öðru í kærleika og trúfesti. Hjónaband þeirra er falið Guði og beðið fyrir sameiginlegri framtíð þeirra.
Gott að vita
Fyrstu skref
Hafið samband við sóknarprest með góðum fyrirvara til að ræða dagsetningu, stað og undirbúning. Ef hann annast athöfnina í einni af kirkjunum okkar sér hann einnig um bókun hennar.
Könnunarvottorð
Hjónaefni þurfa að fá könnunarvottorð frá sýslumanni áður en hjónavígsla getur farið fram.
Nánari upplýsingar og umsókn á Ísland.is (opnast í nýjum flipa)Svaramenn og vottar
Við umsókn um könnunarvottorð eru tilgreindir tveir svaramenn. Við hjónavígsluna sjálfa þurfa einnig að vera viðstödd tvö vitni.
Hafið samband
Hafið samband við sóknarprest með góðum fyrirvara til að ræða dagsetningu, stað og undirbúning hjónavígslunnar.