SÓKNIN

Ólafsvíkursókn

Ólafsvíkursókn tilheyrir Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli ásamt Ingjaldshólssókn. Sókn er landfræðilegt hugtak en söfnuður vísar til þeirra íbúa sóknarinnar sem tilheyra þjóðkirkjunni.

Prestakall nær yfir eina eða fleiri sóknir og í því þjóna einn eða fleiri prestar. Í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli starfar einn prestur.

Prófastsdæmi samanstendur af nokkrum prestaköllum og þannig tilheyrir prestakallið okkar Vesturlandsprófastsdæmi. Í hverju prófastsdæmi starfar prófastur sem í umboði biskups hefur tilsjón með kirkjulegu starfi og er meðal annars ráðgjafi presta og sóknarnefnda.

Þjónusta þjóðkirkjunnar og presta hennar stendur öllum íbúum sóknanna til boða, óháð trúfélagsaðild.

1.068

íbúar

Merki Þjóðkirkjunnar

613

skráðir í þjóðkirkjuna

1. desember 2025
Kort sem sýnir sóknarmörk Ólafsvíkursóknar.
Sóknarmörk Ólafsvíkursóknar
KIRKJUR SÓKNARINNAR

Kirkjurnar

Reglubundið helgihald safnaðarins fer fram í Ólafsvíkurkirkju. Hún er andlegt heimili okkar þar sem við komum saman, bæði til venjulegrar guðsþjónustu og á gleði- og sorgarstundum lífsins. Þar lofum við Guð og tilbiðjum hann, heyrum orð hans og eigum heilagt samfélag við hann og hvert við annað.

Brimilsvallakirkja er minna notuð og helgihaldið þar er tilfallandi. Löng hefð er þó fyrir því að halda þar ljósamessu að kvöldi jóladags.

Ólafsvíkurkirkja séð utan frá með klukknaport í forgrunni.

Ólafsvíkurkirkja

Brimilsvallakirkja með fjöllin í bakgrunni.

Brimilsvallakirkja

SÓKNARNEFNDIN

SóknarnefndÓlafsvíkursóknar

Sóknarnefnd ber ábyrgð á rekstri sóknarinnar, eignum hennar og starfsmannahaldi og tekur ásamt sóknarpresti þátt í að móta safnaðarstarfið.

Meira um sóknarnefndir

Aðalmenn

Olga Guðrún Gunnarsdóttir

Formaður

Pétur Steinar Jóhannsson

Pétur Steinar Jóhannsson

Varaformaður

Ragnheiður Víglundsdóttir

Gjaldkeri

Inga Fanney Gray Jónasdóttir

Meðstjórnandi

Þorsteinn Jakobsson

Meðstjórnandi

Varamenn

Guðríður ÞórðardóttirGuðrún Kolbrún JóhannesdóttirOddur Orri BrynjarssonÓlafur Vignir SigurðssonStefanía Sólborg Guðmundsdóttir

STARFSFÓLKIÐ

Starfsfólk

Ægir Örn Sveinsson

Ægir Örn Sveinsson

Sóknarprestur

Veronica Osterhammer

Kórstjóri

Nanna Þórðardóttir

Organisti

Ewelina Zolobow

Kirkjuvörður

Baldvin Leifur Ívarsson

Umsjón kirkjugarðs og líkhúss

Söfnuðurinn

Hver erum við oghverju trúum við?

Hver erum við?

Ólafsvíkursókn er söfnuður innan þjóðkirkjunnar, evangelísk-lútherskrar kirkju á Íslandi. Söfnuðurinn leitast við að vera lifandi samfélag þar sem fólk á öllum aldri getur tekið þátt í lífi kirkjunnar og vaxið í trú, von og kærleika.

Hverju trúum við?

Trú og boðun kirkjunnar byggjast á Heilagri ritningu og játningum kirkjunnar. Þar játum við trú á einn Guð, föður, son og heilagan anda.

Í miðju kristinnar trúar stendur Jesús Kristur. Í honum mætir Guð okkur með náð, fyrirgefningu og von. Kirkjan boðar fagnaðarerindið um Krist og býður fólki til samfélags í trúnni.

Trúin í lífi safnaðarins

Söfnuðurinn safnast saman um orð Guðs og sakramentin. Í guðsþjónustunni heyrum við fagnaðarerindið, biðjum, lofum Guð og þiggjum blessun.

Trúin á síðan erindi inn í daglegt líf. Þaðan erum við send til að þjóna náunga okkar og láta trúna móta samskipti okkar og samfélag.