SAFNAÐARSTARF

Kirkjuskóli

Við köllum sunnudagaskólann okkar „Kirkjuskólann“ því hann fer ekki fram á sunnudögum heldur á fimmtudögum. Þar kynnast börnin kristinni trú, sögum úr Biblíunni og hefðum kirkjunnar á lifandi og skemmtilegan hátt.


Börn í kirkjuskólanum læra um trú á skemmtilegan hátt
Í kirkjuskólanum syngjum við mikið og dönsum stundum, leikum okkur og förum með stuttar bænir. Í lok stundarinnar bjóða Mýsla og Músapési oft upp á eitthvað gott í gogginn og stundum föndrum við eða litum myndir. Kirkjuskólinn er samstarf okkar og kirkjunnar í Grundarfirði. Sr. Karen Hjartardóttir tekur því þátt í starfinu með okkur. Kirkjuskólinn starfar yfirleitt frá miðjum september fram undir aðventu og aftur frá síðari hluta janúar fram yfir páska.

Helstu upplýsingar

Hvar
Safnaðarheimili Ingjaldshólskirkju fyrir jól og safnaðarheimili Ólafsvíkurkirkju eftir jól
Hvenær
Fimmtudaga kl. 16:20
Aldur
Öll börn en einkum þau sem eru á leikskólaaldri
Umsjón
Sr. Ægir og sr. Karen Hjartardóttir