Samverur eru haldnar á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Jaðri einu sinni í viku. Þær fara að mestu fram með léttu spjalli og stuttri hugvekju og þeim lýkur með því að við biðjum saman Faðir vorið.
Einu sinni í mánuði eru haldnar formlegri helgistundir. Auk þess eru guðsþjónusta á jóladegi og opin messa með altarisgöngu haldnar árlega á Jaðri.