
Brimilsvallakirkja
Brimilsvallakirkja er steinsteypt kirkja sem vígð var árið 1923. Hún var teiknuð af Guðjóni Samúelssyni húsameistara ríkisins.

Mynd: Ægir Örn Sveinsson
Horft inn að kór og altari Brimilsvallakirkju.
Mynd: Ægir Örn Sveinsson
Altaristaflan er verk Guðmundar Einarssonar frá Miðdal.
Brimilsvallakirkja er steinsteypt kirkja sem vígð var árið 1923. Kirkjan var teiknuð af Guðjóni Samúelssyni húsameistara ríkisins, en yfirsmiður var Alexander Valentínusson. Árið 1967 fóru fram gagngerar endurbætur á kirkjunni.
Allir gluggar voru endurnýjaðir og kirkjan máluð. Árið 1982 var svo skipt um járn á þaki og turni. Árið 2002 fóru einnig fram miklar endurbætur þegar þakjárn kirkjunnar var endurnýjað, sem og gluggar á norðurhlið, auk þess sem falskir póstar voru settir innan í alla glugga.
Sáluhliðið er smíðað og gefið af Ragnari Ágústssyni. Altaristaflan er frá árinu 1962 og er eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal. Hún sýnir Jesú ganga á vatninu. Kirkjan á kaleik og patínu úr silfurpletti frá árinu 1923. Skírnarfonturinn er úr tekkviði á fæti í stuðlabergsgerð, birkiviði í miðju og súlan er sexstrend úr rauðaviði. Rendurnar og kantarnir eru úr renndum birkiviði. Skírnarfonturinn er smíðaður af Bjarna Kjartanssyni frá Búðum á Snæfellsnesi.
Skírnarskálin er úr úr kristal og hvílir á silfurplettskál. Gamall skírnarfontur er geymdur á kirkjulofti. Kirkjuklukkur Brimilsvallakirkju eru tvær, stærri klukkan er frá árinu 1926, en hin minni án ártals.
Á eldri vef prestakallsins (opnast í nýjum flipa) er að finna ýmsan fróðleik um kirkjuna. Þar má meðal annars kynnast fólkinu sem hefur mótað sögu hennar, kirkjubyggingunni og þeim gripum, minningum og frásögnum sem henni tengjast.
Texti um kirkjuna er fenginn af vef þjóðkirkjunnar (opnast í nýjum flipa).