SÓKNIN

Ingjaldshólssókn

Ingjaldshólssókn tilheyrir Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli ásamt Ólafsvíkursókn. Sókn er landfræðilegt hugtak en söfnuður vísar til þeirra íbúa sóknarinnar sem tilheyra þjóðkirkjunni.

Prestakall nær yfir eina eða fleiri sóknir og í því þjóna einn eða fleiri prestar. Í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli starfar einn prestur.

Prófastsdæmi samanstendur af nokkrum prestaköllum og þannig tilheyrir prestakallið okkar Vesturlandsprófastsdæmi. Í hverju prófastsdæmi starfar prófastur sem í umboði biskups hefur tilsjón með kirkjulegu starfi og er meðal annars ráðgjafi presta og sóknarnefnda.

Þjónusta þjóðkirkjunnar og presta hennar stendur öllum íbúum sóknanna til boða, óháð trúfélagsaðild

551

íbúar

Merki Þjóðkirkjunnar

316

skráðir í þjóðkirkjuna

1. desember 2025
Kort sem sýnir sóknarmörk Ingjaldshólssóknar.
Sóknarmörk Ingjaldshólssóknar
KIRKJA SÓKNARINNAR

Kirkjan

Ingjaldshólskirkja er sóknarkirkja Ingjaldshólssóknar. Þar kemur söfnuðurinn saman, bæði til venjulegrar guðsþjónustu og á gleði- og sorgarstundum lífsins. Kirkjan stendur á fornum kirkjustað og er eitt helsta kennileiti sóknarinnar undir Jökli.

Ingjaldshólskirkja séð utan frá.

Ingjaldshólskirkja

SÓKNARNEFNDIN

SóknarnefndIngjaldshólssóknar

Sóknarnefnd ber ábyrgð á rekstri sóknarinnar, eignum hennar og starfsmannahaldi og tekur ásamt sóknarpresti þátt í að móta safnaðarstarfið.

Meira um sóknarnefndir

Aðalmenn

Hafþór Svanur Svansson

Formaður

Rebekka Unnarsdóttir

Gjaldkeri

Birna Sigurðardóttir

Ritari

Kristinn Jón Friðþjófsson

Safnaðarfulltrúi

Ari Bent Ómarsson

Meðstjórnandi

Varamenn

Gunnhildur Kristný HafsteinsdóttirHlynur HafsteinssonKaren OlsenMargrét Þorláksdóttir

STARFSFÓLKIÐ

Starfsfólk

Ægir Örn Sveinsson

Ægir Örn Sveinsson

Sóknarprestur

Ari Bent Ómarsson

Meðhjálpari · Umsjón kirkjugarðs

Elena Makeeva

Organisti

Ewelina Zolobow

Kirkjuvörður

Söfnuðurinn

Hver erum við oghverju trúum við?

Hver erum við?

Ingjaldshólssókn er söfnuður innan þjóðkirkjunnar, evangelísk-lútherskrar kirkju á Íslandi. Söfnuðurinn leitast við að vera lifandi samfélag þar sem fólk á öllum aldri getur tekið þátt í lífi kirkjunnar og vaxið í trú, von og kærleika.

Hverju trúum við?

Trú og boðun kirkjunnar byggjast á Heilagri ritningu og játningum kirkjunnar. Þar játum við trú á einn Guð, föður, son og heilagan anda.

Í miðju kristinnar trúar stendur Jesús Kristur. Í honum mætir Guð okkur með náð, fyrirgefningu og von. Kirkjan boðar fagnaðarerindið um Krist og býður fólki til samfélags í trúnni.

Trúin í lífi safnaðarins

Söfnuðurinn safnast saman um orð Guðs og sakramentin. Í guðsþjónustunni heyrum við fagnaðarerindið, biðjum, lofum Guð og þiggjum blessun.

Trúin á síðan erindi inn í daglegt líf. Þaðan erum við send til að þjóna náunga okkar og láta trúna móta samskipti okkar og samfélag.