Kirkjur og safnaðarheimili
Hægt er að óska eftir leigu á Ólafsvíkurkirkju, Ingjaldshólskirkju og safnaðarheimilum kirknanna. Ósk um leigu er ekki staðfest bókun. Fyrst þarf að staðfesta að rýmið sé laust og að fyrirhuguð notkun sé samþykkt. Bókun telst staðfest þegar leigugjald hefur borist.
Um afnot af kirkjunum
Ólafsvíkurkirkja og Ingjaldshólskirkja eru vígðir helgidómar. Hægt er að fá kirkjurnar leigðar fyrir tónleika, fyrirlestra og aðra viðburði sem samrýmast kristnu hlutverki þeirra og virðingu helgidómsins.
Kirkjurnar eru ekki leigðar fyrir borgaralegar athafnir eða trúarathafnir annarra trúfélaga en kristinna. Þar mega heldur ekki fara fram viðburðir þar sem innihald, framkoma eða umgjörð stríðir gegn kristnu hlutverki kirkjunnar eða virðingu fyrir helgidóminum.
Bókun kirkju er háð samþykki sóknarprests og sóknarnefndar.
Ólafsvíkurkirkja
Safnaðarheimilið
35.000 kr.
Staðalbúnaður:
- salur
- eldhús
- borð
- stólar
- borðbúnaður
Um leigu til lengri tíma eða aðra sérstaka tilhögun skal hafa samband við formann sóknarnefndar.
Bókanir
Kirkjuvörður hefur umsjón með bókunum. Vinsamlegast hafið samband ef óskað er eftir nánari upplýsingum eða ef þið viljið bóka leigu.
Kirkjan
40.000 kr.
Safnaðarheimilið er ekki innifalið í leigu kirkjunnar.
STEF-gjöld eru ekki innifalin í leiguverði. Tónleikahaldari ber ábyrgð á samskiptum við STEF og greiðslu þeirra gjalda sem við eiga. Nánari upplýsingar um tónleikahald hjá STEFi (opnast í nýjum flipa)
Samþykki sóknarprests
Sóknarprestur þarf að samþykkja notkun kirkjunnar til annarra nota en helgihalds á hennar vegum. Vinsamlegast hafið samband við hann ef óskað er eftir slíkum afnotum.

Ingjaldshólskirkja

Viðbótarkostnaður
Þegar viðvera kirkjuvarðar er nauðsynleg greiðist 6.000 kr. fyrir hverja klukkustund. Lágmarksgjald miðast við tvær klukkustundir.
Reiknaður tími nær yfir allan vinnutíma kirkjuvarðar vegna viðburðarins, þar á meðal opnun, undirbúning, viðveru og frágang.
Leiguskilmálar
Ósk um leigu er ekki staðfest bókun. Fyrst þarf að staðfesta að rýmið sé laust og að fyrirhuguð notkun sé samþykkt. Bókun telst staðfest þegar leigugjald hefur borist.
Leigutaki ber ábyrgð á þrifum að leigu lokinni og skal skila húsnæðinu, eldhúsi, búnaði og öðrum afnotasvæðum í sama ástandi og við upphaf leigu. Ef þrifum eða frágangi er ábótavant verður kostnaður vegna viðbótarþrifa innheimtur hjá leigutaka.
Leigutaki ber ábyrgð á tjóni sem verður á húsnæði, munum eða búnaði á leigutímanum og skal bæta það að fullu.
Leigutaki skal að leigu lokinni ganga frá borðum, stólum og öðrum búnaði á þann stað og með þeim hætti sem var við upphaf leigu.
Leigutaki ber ábyrgð á lyklum og öðrum aðgangi að húsnæðinu á leigutímanum og skal skila lyklum samkvæmt fyrirmælum að leigu lokinni.
Reykingar eru óheimilar í húsnæði sóknanna.