Reglubundið helgihald
Reglubundið helgihald í Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli fylgir að nokkru leyti starfsári safnaðanna. Hauststarfið hefst yfirleitt í lok ágúst eða byrjun september og stendur fram að áramótum. Eftir jólahlé hefst reglubundið starf aftur síðari hluta janúar og stendur fram undir lok júní. Yfir hásumarmánuðina gerum við hlé á öðru helgihaldi en skírnum, hjónavígslum og útförum sem fara þá fram eftir þörfum.
Guðsþjónustur
Guðsþjónustur eru að jafnaði annan hvern sunnudag í Ólafsvíkurkirkju og um það bil mánaðarlega í Ingjaldshólskirkju. Þær eru oftast kl. 11.00 eða kl. 14.00 en stundum er helgihald fært á sunnudagskvöld eða kvöld á virkum degi, sérstaklega þegar það er með öðru sniði en venjulega. Þess vegna eru næstu guðsþjónustur alltaf auglýstar sérstaklega hér á síðunni.
Kyrrðarbænastundir á Ingjaldshóli
Bænastundir eru í Ingjaldshólskirkju á miðvikudögum kl. 12.30. Prestur er á staðnum og kirkjan opin þeim sem vilja eiga stutta stund í bæn, kyrrð eða spjall. Að bænastund lokinni er boðið upp á kaffi fyrir þau sem vilja staldra við.
Kirkjuskóli
Kirkjuskólinn er helgihald sniðið að yngstu börnunum og fjölskyldum þeirra en auðvitað eru allir velkomnir. Hann er að jafnaði á fimmtudögum kl. 16.20 þegar starfið er í gangi. Fyrir jól er hann yfirleitt í Ingjaldshólskirkju og eftir jól í Ólafsvíkurkirkju.
Nánari upplýsingar má finna á síðu kirkjuskólans.


