Útför
Útför í kirkju er kveðjustund þar sem minnst er hins látna, þakkað fyrir líf hans og boðuð kristin von. Prestur undirbýr athöfnina í samráði við aðstandendur, organista eða kórstjóra og útfararstofu.

Þegar ástvinur deyr
Þegar andlát nálgast eða ástvinur deyr vakna oft margar spurningar. Hægt er að hafa samband við sóknarprest bæði fyrir og eftir andlátið. Prestur getur komið til samtals eða bænastundar við dánarbeð á heimili, sjúkrahúsi eða hjúkrunarheimili.
Eftir andlát veitir prestur aðstandendum stuðning og leiðsögn við fyrstu skrefin. Þá er sjálfsagt að þiggja þjónustu útfararstofu sem getur aðstoðað við skipulagningu og önnur hagnýt atriði.
Andlátstilkynning
Áður en útför getur farið fram þarf að tilkynna andlátið til sýslumanns. Aðstandandi fær þá vottorð um tilkynningu andláts og kemur því til prests eða annars sem annast útförina.
Undirbúningur útfararinnar
Fyrir útförina hittir prestur nánustu aðstandendur. Í samtalinu er rætt um líf og sögu hins látna, fjölskyldu, uppvöxt, störf, áhugamál, persónuleika og það sem aðstandendur vilja að komi fram í minningarorðum.
Oft hjálpar að rifja upp stuttar sögur eða atvik sem lýsa manneskjunni og því sem henni var mikilvægt. Samtalið er einnig tækifæri til að ræða sorgina, söknuðinn og það sem hvílir á aðstandendum.
Þá er farið yfir útfararathöfnina, kistulagningu og önnur atriði eftir því sem við á, svo sem sálma, tónlist, ritningarlestra, moldun og líkmenn.
Útförin og kristin von
Í útförinni kemur fólk saman til að minnast hins látna, þakka fyrir líf hans og kveðja. Lesið er úr Ritningunni, beðið, flutt minningarorð og sungnir sálmar.
Boðskapur athafnarinnar er vonin sem byggir á dauða og upprisu Jesú Krists. Við moldunina er hinn látni falinn Guði í þeirri von að dauðinn eigi ekki síðasta orðið.
Sálmar og önnur tónlist eru valin í samráði við prest, organista eða kórstjóra og með hliðsjón af helgi athafnarinnar og óskum aðstandenda.
Hagnýt atriði
Útfararstofa getur aðstoðað við val á kistu, flutning, sálmaskrá, blóm og annað sem tengist undirbúningi útfarar.
Einnig þarf að huga að legstað, grafartöku, líkmönnum, gestabók, streymi ef óskað er og erfidrykkju ef fjölskyldan vill halda hana.
Sóknarsamlag Ólafsvíkur- og Ingjaldshólssókna hefur til umráða líkhús og líkbíl sem hægt er að nota eftir samkomulagi.
Gott að vita
Andlátstilkynning
Áður en útför getur farið fram þarf prestur eða annar sem annast útförina að hafa fengið vottorð um að andlátið hafi verið tilkynnt til sýslumanns.
Upplýsingar og andlátstilkynning á Ísland.is (opnast í nýjum flipa)Útför í kirkju
Vefurinn Útför í kirkju (opnast í nýjum flipa) er gagnlegur leiðarvísir fyrir aðstandendur. Þar er fjallað um fyrstu skrefin við andlát, undirbúning kistulagningar og útfarar, sorg og stuðning og kristna von um upprisu. Við hvetjum aðstandendur til að kynna sér vefinn.
Sálmar og tónlist
Sálmar og tónlist eru valin í samráði við prest, organista eða kórstjóra. Á vefnum Útför í kirkju (opnast í nýjum flipa) má finna leiðbeiningar og hugmyndir sem hjálpa við valið. Þar má einnig finna upptökur af sálmum og annarri tónlist við útfarir.
Börn og útför
Mikilvægt er að ræða við börn og unglinga um andlátið, kistulagningu og útför og gefa þeim tækifæri til að spyrja og taka þátt eftir aldri og þroska. Á vefnum Útför í kirkju (opnast í nýjum flipa) má finna gagnlegar leiðbeiningar fyrir foreldra og aðra aðstandendur.
Líkhús og líkbíll
Sóknarsamlag Ólafsvíkur- og Ingjaldshólssókna hefur til umráða líkhús og líkbíl sem hægt er að nota eftir samkomulagi. Gjöld geta átt við og eru rædd þegar undirbúningur hefst.
Hafið samband
Hægt er að hafa samband við sóknarprest þegar andlát nálgast eða eftir andlát. Prestur veitir aðstandendum stuðning og leiðsögn við næstu skref.