SAFNAÐARSTARF

Kirkjukór Ólafsvíkur

Kirkjukór Ólafsvíkur er rúmlega 20 manna blandaður kór. Kórstarfið einkennist af metnað, gleði, fjölbreyttum söng og skemmtilegu félagslífi.


Kirkjukór Ólafsvíkur
Kórinn tekur þátt í öllu helgihaldinu í Ólafsvíkurkirkju, heldur árlega vor- og jólatónleika og fer reglulega í messuheimsóknir og tónleikaferðir innanlands. Kirkjukór Ólafsvíkur hefur farið í fjórar utanlandsferðir til tónleikahalds, 2002 til Færeyja, 2005 og 2015 til Þýskalands, þar sem sungið var á heimaslóðum kórstjórans og 2024 til Suður Tirol. Árið 2013 gaf Kirkjukórinn einnig út geisladisk sem heitir “íslensk og þýsk jól”. Kóræfingar eru víkulega á fimmtudögum í Safnaðarheimili Ólafsvíkurkirku kl. 19:00 – 21:00. Nýir kórfélagar ávallt velkomnir!

Kóræfingar

Hvar
Safnaðarheimili Ólafsvíkurkirkju
Hvenær
Fimmtudagar kl. 19:00-21:00

Kórstjóri

Veronica Osterhammer hefur stýrt Kirkjukór Ólafsvíkur síðan árið 2000. Hún hefur þar leitt mörg metnaðarfull verkefni og skemmtilega tónleika. Veronica er auk þess stjórnandi Skólakórs Snæfellsbæjar.

Veronica Osterhammer

864 8833

brimilsvellir@isl.is

Stjórn kórsins

Gerður Þórðardóttir (formaður)

Sóley Jónsdóttir

Steiney K Ólafsdóttir

Magnús Höskuldsson