Skírn
Skírnin er gjöf Guðs og innganga í kristna kirkju. Í skírninni er skírnarþeginn falinn Guði, föður, syni og heilögum anda og tekur við fyrirheiti hans um kærleika og nærveru. Börn, ungmenni og fullorðið fólk geta tekið skírn.

Skírn hjá okkur
Algengast er að foreldrar óski eftir skírn fyrir barn sitt en ungmenni og fullorðið fólk geta einnig óskað eftir skírn.
Skírn getur farið fram í almennri guðsþjónustu, í sérstakri skírnarathöfn í kirkju eða annars staðar eftir samkomulagi.
Undirbúningur skírnar
Best er að hafa samband með góðum fyrirvara. Þegar óskað er eftir skírn biður prestur um helstu upplýsingar fyrirfram svo hægt sé að undirbúa samtalið og athöfnina vel.
Í undirbúningssamtalinu er farið yfir upplýsingarnar, þær staðfestar og síðan rætt um athöfnina sjálfa. Þar er útskýrt hvernig skírnin fer fram og rætt um sálma, tónlist, lestur, þátttöku fjölskyldu og aðrar óskir.
Samtalið er líka tækifæri til að ræða merkingu skírnarinnar og það hlutverk foreldra og skírnarvotta að biðja fyrir barninu, segja því frá Jesú og hjálpa því að vaxa í trú, von og kærleika.
Hvað er skírn?
Skírnin er annað af tveimur sakramentum evangelísk-lútherskrar kirkju. Sakramenti eru fyrirheit Drottins um fyrirgefningu, líf og sáluhjálp, bundin jarðneskum táknum. Í skírninni er jarðneska táknið vatnið. Þannig mætir Guð manneskjunni og veitir henni náð sína með einföldu vatni og orði sínu.
Upphaf skírnarinnar er að finna í orðum Jesú til lærisveina sinna eftir upprisunu:
Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þeir til nafns föður, sonar og hins heilaga anda, og kennið þeim að halda allt það, sem ég hefi boðið yður. Og sjá, ég er með yður alla daga, allt til enda veraldar.
Þessi orð eru kölluð skírnarskipunin. Í krafti þeirra er fagnaðarerindið um kærleika og fyrirgefningu Guðs boðað í orði og verki. Þannig hefur boðskapur Jesú borist frá einni kynslóð til annarrar gegnum aldir.
Trúin á heimilinu
Skírnin markar upphaf lífsgöngu með Kristi. Skírnarþeginn er kallaður til að fylgja honum og vaxa í trú, von og kærleika.
Foreldrar og skírnarvottar þurfa ekki að hafa fullkomin svör við öllum spurningum. Einföld bæn, blessun fyrir svefninn, frásagnir af Jesú og þátttaka í lífi kirkjunnar hjálpa barninu að kynnast Kristi og treysta honum.
Í kirkjunni okkar er Kirkjuskóli þar sem börn fá að syngja, biðja og kynnast frásögnum Biblíunnar. Foreldrar eru hvattir til að koma með börnin í Kirkjuskólann strax frá unga aldri.
Skírnarvottar
Við barnaskírn eru skírnarvottar, sem einnig eru kallaðir guðforeldrar, valdir af aðstandendum. Þeir eru vottar skírnarinnar og standa með foreldrum í þeirri köllun að biðja fyrir barninu og styðja það í kristinni trú.
Skírnarvottar eru tveir til fimm og þurfa að vera skírðir einstaklingar.
Gott að vita
Fyrstu skref
Hafið samband við sóknarprest með góðum fyrirvara. Prestur biður um helstu upplýsingar og boðar til samtals þar sem farið er yfir undirbúning og fyrirkomulag skírnarinnar.
Skírnarvottar
Skírnarvottar eru tveir til fimm og þurfa að vera skírðir einstaklingar.
Safnaðarheimili
Hægt er að óska eftir að nota safnaðarheimili eftir skírn í kirkju. Prestur kemur fjölskyldunni í samband við þann sem sér um bókanir.
Hafið samband
Hafið samband við sóknarprest til að ræða tíma, stað og undirbúning skírnarinnar.