22. maí 2025

Langri þjónustu í kirkjukórum fagnað með Liljunni

Kórfélagar úr Kirkjukór Ólafsvíkur og Kirkjukór Ingjaldshólskirkju hlutu heiðursviðurkenninguna Liljuna við sameiginlega guðsþjónustu í Ólafsvíkurkirkju sunnudaginn 18. maí 2025. Viðurkenningin er veitt fyrir 30 ára söngstarf í kirkjukór eða lengur.

Handhafar Liljunnar í Kirkjukór Ólafsvíkur ásamt sóknarpresti.

Mynd: Kristinn Jónasson

Handhafar Liljunnar í Kirkjukór Ólafsvíkur ásamt sóknarpresti.

Handhafar Liljunnar í Kirkjukór Ingjaldshólskirkju.

Mynd: Kristinn Jónasson

Handhafar Liljunnar í Kirkjukór Ingjaldshólskirkju.

Kórfélagar heiðraðir

Guðný Einarsdóttir, söngmálastjóri þjóðkirkjunnar ávarpaði kirkjugesti.

Mynd: Kristinn Jónasson

Guðný Einarsdóttir, söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, afhenti viðurkenningarnar. Hér ávarpar hún kirkjugesti.

Sameiginleg guðsþjónusta Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalls var haldin sunnudaginn 18. maí. Í guðsþjónustunni voru kórfélögum sem hafa sungið í kirkjukór í meira en 30 ár afhent heiðursviðurkenninguna Liljan. Með viðurkenningunni þakkar þjóðkirkjan fyrir trúfasta þjónustu við söngstörf í kór í kirkjum um áratuga skeið. Söngurinn og kirkjukórar eru ómissandi í helgihaldi og safnaðarstarfi kirkjunnar. Úr kirkjukór Ólafsvíkur og kirkjukór Ingjaldshólssóknar voru 29 kórfélagar heiðraðir fyrir sitt framlag til kirkjustarfsins

Jökull, 1161. tbl - 25. árg.