23. október 2024

Kirkjukór Ólafsvíkur í tónleikaferð til Suður-Týról

Í október héldu félagar í Kirkjukór Ólafsvíkur ásamt mökum í skemmti- og tónleikaferð til Suður-Týról. Ferðin hófst með flugi til München og þaðan var ekið suður um Bæjaraland og Austurríki, inn í Alpafjöllin og yfir landamærin til Ítalíu. Áfangastaðurinn var Brixen, þar sem hópurinn dvaldi næstu daga.

Kirkjukór Ólafsvíkur og Männergesangsverein Brixen 1862 eftir tónleikana í Brixen.

Kirkjukór Ólafsvíkur og Männergesangsverein Brixen 1862 eftir tónleikana í Brixen.

Brixen og Barbara Fleckinger

Mikilvægur þáttur í ferðinni var að hitta aftur Barböru Fleckinger, fyrrum kórfélaga sem bjó í Ólafsvík í tólf ár en býr nú í Brixen (ítalska: Bressanone) ásamt fjölskyldu sinni. Barbara hafði aðstoðað við undirbúning ferðarinnar og var leiðsögumaður hópsins meðan á dvölinni stóð.

Bozen og Ötzi

Fyrsti heili dagurinn var nýttur til ferðar með lest til Bozen (ítalska: Bolzano), höfuðborgar Suður-Týról. Barbara gekk með hópnum um miðbæinn og sagði frá sögu þessa sérstaka landshluta, þar sem þýsk og ítölsk tunga og menning mætast.

Þar var meðal annars heimsótt safnið um Ötzi, ísmanninn sem fannst einstaklega vel varðveittur í Ölpunum. Að heimsókninni lokinni gafst tími til að njóta bæjarins, skoða verslanir og markaði og setjast inn á kaffihús.

Um kvöldið var síðan góð stemning á hótelinu og veðrið svo milt að hægt var að sitja úti langt fram eftir kvöldi.

Neustift, ostasmökkun og móttaka í ráðhúsinu

Daginn eftir gekk hópurinn með Barböru að Neustift-klaustri. Á leiðinni þurfti aðeins að grípa til regnhlífanna, en haustlitirnir á trjánum settu fallegan svip á gönguna. Barbara kenndi hópnum tvö þjóðlög á leiðinni sem lærðust fljótt og voru sungin aftur við ýmis tækifæri síðar í ferðinni.

Síðar um daginn tók við ostasmökkun þar sem hópurinn fékk fræðslu um osta og hvernig mismunandi aðferðir við bragðbætingu gefa þeim sitt sérstaka bragð.

Sama dag beið kórsins formleg móttaka í ráðhúsinu í Brixen. Fulltrúar bæjarins tóku þar á móti hópnum og gestirnir fengu meðal annars að fara út á þaksvalir ráðhússins og njóta útsýnis yfir bæinn.

Tónleikar með Männergesangsverein Brixen 1862

Hápunktur ferðarinnar var sameiginlegur tónleikur Kirkjukórs Ólafsvíkur og Männergesangsverein Brixen 1862.

Kirkjukór Ólafsvíkur flutti fjölbreytta íslenska söngskrá undir stjórn Veronicu Osterhammer, en Valentina Kay lék undir á píanó. Veronica söng einnig einsöng í lögunum Rósin og Augun þín. Síðarnefnda lagið samdi Valentina Kay við texta Egils Þórðarsonar frá Ólafsvík.

Barbara Fleckinger tók einnig til máls og sagði tónleikagestum frá tengslum sínum við Ísland og Ólafsvík.

Að íslenska hluta tónleikanna loknum tók Männergesangsverein Brixen 1862 við og flutti sína söngskrá af mikilli fagmennsku og með fallegum kórhljómi. Í lokin sameinuðust kórarnir tveir og sungu saman tvö þjóðlög frá Alpasvæðinu undir stjórn Veronicu.

Raddir íslenska og suðurtýrólsku kórsins hljómuðu vel saman og að lokum gekk hópurinn syngjandi út úr tónleikasalnum.

Eftir tónleikana buðu félagar í karlakórnum gestum sínum til veislu og þar var vel heppnuðum tónleikum fagnað saman. Vonir standa til að Männergesangsverein Brixen 1862 geti síðar endurgoldið heimsóknina og komið til Ólafsvíkur.

Plose og Dolomitafjöllin

Síðasti heili dagurinn var meðal annars nýttur til ferðar með fjallakláfi upp á Plose. Þaðan blasti við stórbrotið útsýni yfir Alpana og Dolomitafjöllin.
Hópurinn naut náttúrunnar og fjallaloftsins — og auðvitað var líka sungið í fjallshlíðinni.

Ferðin sameinaði þannig söng, vináttu, ný kynni og ógleymanlegar stundir, bæði á tónleikapallinum og í fögru umhverfi Suður-Týról.

Myndir með frétt

Männergesangsverein Brixen 1862 á tónleikum í Brixen.

Männergesangsverein Brixen 1862 á tónleikum í Brixen.

Kirkjukór Ólafsvíkur í tónleikasalnum í Brixen.

Kirkjukór Ólafsvíkur í tónleikasalnum í Brixen.

Veronica