8. júlí 2026

Rekstur kirkjunnar krefjandi

Starfsemi sóknarnefndar Ólafsvíkurkirkju hefur verið með hefðbundnu sniði á liðnu starfsári. Fundir hafa að jafnaði verið haldnir einu sinni í mánuði, þó með rólegra fundahaldi yfir sumarmánuðina. Stjórn hefur jafnframt komið oftar saman en áður til að vinna að ýmsum verkefnum sem tengjast rekstri og viðhaldi kirkjunnar.

Ólafsvíkurkirkja séð frá suðvesturhlið í björtu veðri.

Gaman er að geta þess að starfsmenn Smiðjunnar, virkni og hæfingarstöð fyrir fullorðið fólk með skerta starfsgetu, hafa ryksugað kirkjuna á miðvikudögum í vetur. Framlag þeirra er mikils metið og gerir gæfumun fyrir daglegan rekstur og umhirðu kirkjunnar.

Á árinu hefur verið unnið að ýmsu viðhaldi og lagfæringum. Til að mynda var tekið til í eldhúsi, geymslum og öðrum innri rýmum kirkjunnar auk þess sem hefur verið farið í ýmis smærri viðhaldsverkefni eins og viðgerðir á lofti í safnaðarheimili, spotta í kirkjuklukkum, vatnsleka og annarra smærri atriða. Stærsta framkvæmd vetrarins var svo uppsetning varmadælu í kirkjunni. Verkefnið gekk vel og fékkst styrkur til framkvæmdarinnar. Varmadælan hefur reynst vel og helst góður hiti í kirkjunni núna. Þá hafa nýir og glæsilegir hátalarar verið settir upp í kirkjunni en þeir voru gjöf frá velunnara kirkjunnar og er þakkað fyrir þann mikilvæga stuðning.

Fram undan eru fjölmörg verkefni sem stefnt er að því að vinna á næstunni. Þar má nefna endurbætur á eldhúsi og lofti í eldhúsi kirkjunnar, nýja gólflista í safnaðarheimilinu, ýmislegt tengt rafmagni í kirkjunni og lagfæringar á útidyrahurð kirkjunnar. Þá þarf að laga líkhúsið en Snæfellsbær mun sjá um að laga þakið og drena meðfram húsinu en nú þegar hefur hafist vinna við að mála húsnæðið, bæði útidyrahurðina og að innan. Þá verður farið í að laga hleðsluvegg við kirkjugarðinn og velunnarar kirkjugarðsins munu sjá um að setja nýtt rafmagn í garðinn. Markmið sóknarnefndar er að ljúka sem flestum þessara verkefna fyrir 60 ára afmæli Ólafsvíkurkirkju sem verður haustið 2027.

Rekstur kirkjunnar er krefjandi líkt og hefur verið og segir Olga Guðrún Gunnarsdóttir, formaður sóknarnefndar að sóknarnefnd leggi áherslu á að leita leiða til að draga úr rekstrarkostnaði án þess að skerða þjónustu en í dag telja sóknarbörn kirkjunnar 503. Áform eru um að halda styrktartónleika í september í samstarfi við Veroniku Osterhammer og Valentinu Kay en markmið tónleikanna er að afla fjár til áframhaldandi framkvæmda og viðhalds kirkjunnar.

Sóknarnefnd Ólafsvíkurkirkju vill koma fram þökkum til séra Ægis og allra starfsmanna kirkjunnar fyrir samstarfið á liðnu ári og miklu þakklæti til velunnara kirkjunnar fyrir örlæti þeirra því án þeirra væri ekki hægt að ráðast í allar þær framkvæmdir og viðhald sem kirkjan þarf á að halda. Þá vill Olga Guðrún, formaður sóknarnefndar, koma til skila þökkum til vina sinna og félaga í sóknarnefnd, sóknarbarna og velunnara kirkjunnar fyrir samstarfið í vetur og aðstoðina við að komast inn í hlutverk formanns.

Þau sem hafa áhuga á að leggja sóknarnefnd Ólafsvíkurkirkju lið í þeim fjölmörgu verkefnum sem nú eru í gangi er bent á reikning Ólafsvíkurkirkju.

Kennitala: 500269-4999
Reikningsnúmer: 0194-26-0076

S.J.